blettur til framfara fyrir gomlu og dýrið

10.29.2004

Frost en engin þýða :-l

Litli ísmolinn er eiginlega bara búin að vera með athygglisbrest í vinnunni og er bara búin að vera að pæjast í dag. Komin með nýja klippingu og strípur í stíl ;) Það var orðið tímabært að update-a gömlu! Ástæðan fyrir þessum athygglisbrest mínum eru "nýjar" uppgvötanir ... og tilraun til að skylja þær... ekkert gengur!! Verð sennilega að kaupa mér frostlaug á leiðinni heim.. þvi þetta hlítur að enda illa... það kemur alltaf af borgunardögum er það ekki???

10.28.2004

Snjór og kuldi mmmmmm gott :)

ég veit að það er bara smá snjór en það er geðveikt!!!! Eins frábær og mér finnst snjórinn væri voða notalegt ef það snjóaði ekki á göturnar.. en maður getur víst ekki farið fram á það! Nú.. að sjálfsögðu á síðustu stundu.. er að skella nöglunum á drossíuna, sem bæðevei er í dundur formi þessa daganna, hrein og allt!! Sjaldséður hlutur í mínum heimi!!! Í kvöld verða gerð skipti á spitalanum á skaganum: amma hefur verið sett á lyfjakúr og á að fara heim og afi fer inn í "staðin". Hann ætlar sér í aðgerð í fyrramálið til að laga fótin á sér.. enda getur hann ekki verið svona á sjónum!!!! :)

10.26.2004

Vínflöskur og læknatal

Eftirvæntingin eftir helginni var svakaleg. Það átti svo aldeilis að vinna upp það svefntap sem hefur hrjáð mig.. en nei!!! Föstudagskvöldið var rosalega ljúft og rólegt þrátt fyrir að vínflöskurnar tæmdust hver af annarri!! Svo varð maður að borga fyrir það daginn eftir.. að sjálfsögðu. Þannig það var þunn pæja sem fór uppá skaga á laugardaginn að hitta ömmu :) Kúbuliðið hittist á laugkvöld á skipulags og margarítufundu;) díses hvað gamla var ekki að geta þetta. Tórði bara fyrir skemmtilegan félagsskap ... og inga! þu mannst hverju þu ætlar að redda fyrir mig!!!!!!!!!!!! ......og skreið svo heim... að vísu eftir að hafa komið við í staffaparty hjá átvr!!!! :) það var merkilegt fyrirbæri :) Mánudagurinn fór ekki eins og hann átti að fara. Amma átti að fara í kransæðaþræðingu um morgunin og þar með átti að koma í veg fyrir þennan svakalega verk sem hefur verið að hrjá hana lengi. En það kom í ljós að þetta væri ekki meinið og læknarnir vita ekki hvað það er sem veldur þessu. Við og hún vorum að sjálfsögðu mjög svekkt en það þyðir lítið. Hún er komin aftur uppá skaga og ég veit ekki betur en að þeir ætla að láta hana á einhver lyf núna... og sjá svo til!!!!!!!!!!!!!!!! ég er ekki sátt við þetta..maður vill að sjálfsögðu fá lækningu!! en maður getur ekki verið að rífa sig á sviði sem maður hefur ekki vit á !!! er það???? Dagurinn í dag er búin að fara í ráðstefnu um vistvænt eldsneyti.. mjög fínir fyrirlestrar.. lærði helling :) nú er bara að fara og massa ræktina.. gamla hin er að bíða eftir mér:)

10.22.2004

ég er snillingur

Þetta var hreinasta snilld! ég er snillingur í kjötsúpugerð! það dó engin og engin er enn orðin veikur ;) nei.. hún var alveg svakalega góð! kom mér þokkalega á óvart! við afi erum gott par í eldhúsinu hahaha.. Hann er einn heima þannig ég ætla til hans í núna í hadeginu, kaupa mbl og eitthvað :)

10.21.2004

Varúð eitrun!!!!

Hversu mikið er hægt að blóta einu forriti? Open office er búin að vera helsti óvinur minn í dag! arrg! Ég verð einhvers staðar að koma þessari frustreisjon frá mér... það er ekki eins og maður bryddi uppá þessu umræðu efni við einhvern!!! hvað segirðu... hvernig finnst þer open office? eh!!!! Afi ákvað að hafa kjötsúpu í matinn og að ég ætti að elda! Fréttin spurðist út og margir búnir að boða sig! díses.. eg veit ekkert hvað ég er að fara að gera.. ekki annað en það er hætta á þvi að ég eitri fyrir fjöldanum! glúps!!! Verð að fara að drífa mig! hann er búin að hringja 2 sinnum.. ef eitthvað á að gerast sem hann hefur ákveðið þa á það að gerast strax!!! þá meina ég núna :) Nýjustu fréttir af ömmu er að það hefur verið ákveðið að blása í kransæðarnar á mán morguninn. Við vorum að reyna að fá hana til að koma hingað.. en nei.. hún er í svo ljómandi félagsskap þarna á spítalanum með bændum og búarliði úr borgarfirðinum að hún er hin sælasta! :) Þannig allt er ljómandi.

10.20.2004

2.sæti

Hvernig er hægt að láta frá sér sem er svo ljómandi? Synir það að maður sé sterkur og sjálfstæður eða synir það að maður er vitlaus? gott er gott.. ekki satt? Afhverju þarf það að vera meira? er gott ekki nóg? Greinilega þarf það að vera undir formekjunum ágætt og standa fyrir sömu merkingu eins og í gömlu einkunarbókunum! þarf að vera best! Maður væri sjálfur ekki sáttur á að gefa sitt næst besta er það nokkuð? Vill maður ekki gefa sitt besta? Nóg blaður um annað sæti.. það vill engin vera þar hvort eð er!!!!!
Ég er enn að kæta mig yfir þvi að þurfa aldrei aftur að taka próf í þessum áfanga sem eg er að trítlast yfir, er svo himinlifandi fegin að hafa lokið þessu í síðustu viku :) Nú (frá og með mánudegi) er sem sagt hafið nýtt skeið á þessu fjölbreytta lífsferli mínu! Byrjaði reyndar ekki meira brilljant en það að dyrið fékk gubbupest og endurmálaði baðherbergið með tilheyrandi abstrakt. Fint enda eru brekkurnar sem ég á eftir að fara yfir í þessu skeiði miklu stærri og subbulegri en þetta písll! En ég er óendalega bjartsyn eins og fyrri daginn. Hvað annað sæti varðar þa kemur það bara í ljós.

10.19.2004

Termó ruglingur

Geðveikt veður! vaknaði svona 20 sinnum í nótt við að allt var að fara til fjandans! viðbjóðslega kalt.. en nei! ekki gömlu! Gamla er bara á bolnum að kafna út hita! hvað er það!!!!!!

10.18.2004


Bara Gaman !!!!!!!! Posted by Hello

Sjúklegt stress og endalaus skemmtun

Jesus kristur hvað þetta var erfiður dagur. Ég held í alvöru að ég hafi farið á yfirsnúning í stressi! Líkaminn var ekki að höndla þessar aðstæður og heilinn löngu búin að fara yfir um. Þetta allt leiddi til aðstæðna þar sem ég bullaði bara og titraði af rugli og spenningi. Þetta var áður en ég fór í prófið!!!! Mér fannst mér ganga rosalega illa og enganveginn koma efninu skynsamlega frá mér... var heppinn að gubba ekki á borðið hjá prófdómaranum og falla svo í yfirlið í framhaldi af þvi!! dramatíkin var orðin svona mikil hahahahaha Svo tóku við langir 4 tímar þar til einkuninn kom!!! Ég var fullkomnlega sannfærð að mér hafi tekist að klúðra þessu smekklega og með stæl!! Þvílíkt sem mér leið illa og hvað ég var svekkt. Ég er búin að gefa mig algerlega í þetta og kann þetta rosalega vel og og og .. hafi tekist að klúðra þessu með stressi!! Það kom mér því verulega á óvart að fá einkuninna, ætlaði ekki að trúa þessu! Ég dofnaði í fingrunum af hæper tilfiningu :) já og er búin að vera svoleiðis síðan.. næ mér eiginlega ekki niður hahahaha...
Deitið var rosalega skemmtilegt,,, kanski eins gott að mér hafi gengið svona vel... held að ég hefði ekkert verið neitt rosalega skemmtileg ef þetta hefði allt farið til fjandans :) Á laugardaginn fór ég í afmæli til Bjössa og svo á Vini Vors og Blóma á Nasa... þvílík skemmtun!!!! Það var svo rosalegt stuð!! Bjarni Reyr náði svo í mig um miðjan dag í gær og við fórum með litlu dýrin hans uppá skaga til ömmu. Hún er bara ágætlega hress miðað við allt. Það var rosalega gott að sjá hana og knúsa hana. Það er merkilegt hvað mér tekst að vera í afneitun með að hún sé svona lasin og sé orðin svona gömul. Þetta er bara eitthvað sem má ekki gerast þvi ég veit að lífið verður ekki það sama án hennar.

10.15.2004

Rauðar kynnar og beljur

Komin með tónlist í botn í eyrnarplöggið og er að telja mér í trú um að það rói mig. ég er alveg klár fyrir þetta og verð fyrir miklum vonbrygðum ef ég rulla þessu ekki upp. ég er samt alveg með rauðar kynnar og hnút í maganum hahahaha... lít út eins og ekta sveitakona núna :) vantar bara slæðunna á hausin´á mer og belju í band :)
Ég er buin að skipuleggja að fara yfir ritgerðarbeinargrindinna á morgun með hinni gömlu, það verður rosalega fint að fá einhvern með sér.. maður er orðin svo samdaunaður þessum struktur sem maður er búin að vera að moðast með offfff lengi. ´fá smá spark er nauðsynlegt. langar rosalega mikið að senda þetta frá mér til að fá þetta samþykkt svo prósessinn se amk komin af stað... þa verður auðveldara að vinna þetta... eða ég er amk búin að telja mér trú um það... En annars verð ég líka að fara að snúa mér að vinnunni.. það er búið að ákveða að kynna þetta á einhverri semí ráðstefnu um miðjan nóv.. þannig þa verður maður að vera búin með næsta hluta... púfff... ja ja ja.. endalaus geðveiki... en samt verður hún gerð á mannlegum hraða eins og ég lofaði sjálfum mér... njóta stundarinnar!!!! hún kemur ekki aftur!!! Það er skemmtileg helgi framundan, er að fara í dundur afmæli og svo ætla eg að vera svoldið væld og fara á deit! jamm maður er bara farin að lifa á brúninni!!! haha.. þýðir ekkert annað en að þreifa sig áfram .. þýðir ekki bara að býða eftir einhverju sem kemur aldrei

10.13.2004

Held mér gangandi, 2 dagar til stefnu!

:)

10.08.2004


plötusnuðar! kjaftæði!!!!! Posted by Hello


sma remainder :) Posted by Hello

Pálmatré í Grafarholtið

Það er alveg að smella plottið um semí kúbuparty á næstu helgi. Mikið verður það ljómandi að halda uppá vonandi farsæl lok á þessu tímabili. Ég þarf að fara og leita að pálma svo ég geti gróðursett þarna í grafarholtinu ( var búin að fá vilyrði fyrir þvi :) ) Mikið rosalega verður gaman.. langt síðan ég hef séð þig gamla mín! sakn!!!!

10.07.2004

:-)

Kidda-Kvöldið var alveg frábært! ekki við öðru að búast :) Slúðruðum okkur fullar af öllu þvi sem er búið að gerast ;) og skemmtum okkur endalaust vel : )

10.05.2004

Þriðjudagur

Enn heima að dreapast úr sleni og flensu. Fór samt sem áður með dýrið til tannlæknis í morgun. Það var brotin fylling hjá henni þannig það var ekki hægt annað. Ég veit nú ekki hversu gott ég hafði af þvi að fara út en ég er amk búin að sofa síðan. Planið er bara að halda áfram að vera dúðuð og pakka sér vel í teppum. Ég verð að komast út á morgun. Það er næst síðasti tímin á morgun og það er uþb vika í lokaprófið þannig þessi flensa má ekki vera lengri!!

10.04.2004

Kidda kvöld

Styttist í kidda-kvöld :) höfum ákv að fara út að borða og fara svo að sja hann matt okkar!! í þeirri von að hann fari nu amk úr einhverju svona til að kæta okkur allar! vildi að mæja væri komin :) sakn!! ´Mér finnst að við ættum að halda svolítið í þetta... að fara annað slagið eitthvað saman og njóta þeirrar menningar sem við höfum áhuga fyrri í hvert skipti! Auðvita er alltaf skemmtilegt að tjutta saman eins og við hofum gert í gegnum árin en þetta er líka skemmtilegt :) þetta er rosalega góð hugmynd og ég styð hana fulls hugar


Birta Posted by Hello


Girls night out :) Posted by Hello

Fullnægingar og eplasnafs

Helgin var viðburðarík! Mín kæra þórhalla hélt uppa tuginna trjá á föstudaginn. Ótrúlega notalegt kvöld. Hún er búin að búa í Reykjavík síðan í nov í fyrra en þetta var í fyrst skipti sem ég fer til hennar. Ömurleg vinkona!! en ætla að bæta úr þessu héðan í frá.. hef saknað hennar og ætla ekki að slugsast meira í þessum málum. Eftir ad hafa lesið allan laugardaginn fórum við birta í sund, þvílíkur unaður. Var í pottinum með bratz dukkunum á meðan dýrið sleppti sér í lauginni ;) Á laugardagskvöld var sannkallað girls night out, við klara sátum á thorvaldsen meiri-part kvölds og höfðum það ekkert smá huggulegt. Fengum okkur að borða og segja má að við höfðum hvítvinið í æð allt kvöldið. Það endaði í brjáluðu tjútti með fullnægingum og eplasnafsi :) það var rosalega gaman. Óþarfa að fara út í smáatr þar sem það gæti farið fyrir brjóstið á viðkvæmum sálum ;) Ég kláraði amk alla orku sem ég átti og sit því nú hér heima með hita og flesnu :(

10.01.2004

Skeljar og greiðslureglan

Sannfæringinn er alveg að virka! þetta skot gengur og meiri tími þegar farin að hlaðast upp til að gera skemmtilega hluti :) ég er búin að finna íbúð en eftir mikla útreikninga kemur í ljós að niðursetningurinn ég get ekki gert þetta akkurat núna. kerfið virkar ekki vel fyrir þá sem hafa ekki nokkrar millur til að geta brúað bilið á milli !! en eg er með plott í gangi sem lítur vel út eins og er og það er aldrei að vita en þetta gangi upp!! Skellum okkur öll á skeljarnar og vonum það! Dagurinn í gær var pínu skrýtin. þrátt fyrir að óralangt sé síðan að slitin voru þá vorum við að ganga frá síðustu hlutunum í gær. Það er ekki það að ég sjái eftir einhverju eða vilji eitthvað annað heldur en að vera í þeirri stöðu sem eg er í dag.. þetta snertir mann samt.
jamm svona er þetta... er að fara að halda fyrirlestur á eftir um greiðslureglunna og bótaskyldu í umhverfismálum!! :) allt voða spennandi ! ;) best að skella sér í lestur og undirbuning :)